Ísafjarðarbær styrkir tvo nemendur til náms við Lýðháskólann á Flateyri

Með styrknum vill Ísafjarðarbær gefa sem flestum nemendum tækifæri til að þroskast og læra í nánu samneyti við aðra nemendur, kennara skólans og íbúa á Flateyri.

Um plássið geta allir þeir einstaklingar sótt sem náð hafa 18 ára aldri í september á þessu ári.

Allir þeir umsækjendur sem sækja um skólavist fyrir 21. maí munu sjálfkrafa koma til greina við styrkveitinguna. Ákvörðun verður í höndum Lýðháskólans á Flateyri en sérstök dómnefnd skipuð fagaðilum og sérfræðingum fer yfir umsóknir.

Sótt er um skólavist og um leið styrkinn hér:

https://lydflat.is/umsoknir-og-inntokuskilyrdi/