Á námskeiðinu nota nemendur myndavélina í listsköpun þar sem kennari aðstoðar nemendur við að finna sína rödd og sýn sem skapandi einstaklingar. Námskeiðið er einstaklingsmiðað og kennari vinnur náið með hverjum og einum hvort sem nemandinn hefur áhuga á listrænni ljósmyndun, tískuljósmyndun, portrett, heimildaljósmyndun eða þessu öllu.
Áhersla er lögð á að vinna með og nýta það sem til er í umhverfi okkar á Flateyri. Kennarinn leggur áherslu á að brjóta reglur, tilraunir og leikgleði. Það þarf ekki flóknar græjur eða flott myndver til að skapa heldur góðar hugmyndir, hugrekki og það að þora einfaldlega að framkvæma.
Kennsluhættir verða í formi fyrirlestra, einkatíma, vinnustofudaga og vinnslu á persónulegum verkefnum.
Saga Sig
ljósmyndari og leikstjóri
Saga hóf að taka ljósmyndir þegar hún var 8 ára en hún heillaðist af fegurð þjóðgarðsins á Þingvöllum þar se hún bjó. Saga lærði ljósmyndun í London og vann þar í 7 ár en sem stendur vinnur hún í Reykjavík sem ljósmyndari, leikstjóri og kennari í ljósmyndum. Eftir útskrift hafa ljósmyndaverk Sögu fengið birtingu um allan heim og hafa verk hennar m.a. Ljósmyndað fyrir Aplle, Nike, Topshop, Vogue, Dazed and Confused og 66North.