Samstarf og viðburðir 2

Samstarf og viðburðir 2

Á þessu námskeiði kynnumst við krafti hópsins, ólíkum hlutverkum innan hans og skoðum okkur sjálf í fjölbreyttum hlutverkum leiðbeinanda og stjórnanda. Að læra á því að gera og upplifa er mikilvægt tæki í allri hópavinnu og í gegnum verkefni og leik er hægt að draga fram mikinn lærdóm. Við skoðum aðferðir upplifunarnáms og ævintýrameðferðar og hvernig við nýtum okkur þær í leik og starfi.

Við undirbúum viðburði á Aldrei fór ég suður og nemendur fá að reyna ferli viðburða- og verkefnastjórnunar, allt frá hugmyndavinnu og þróun yfir í áætlanir, skipulag og samvinnu, fjármögnun, markaðssetningu og eftirfylgni. 

 

Steinþór Helgi Arnsteinsson
hefur starfað við viðburðahald í vel rúman áratug. Hann á að baki fjölbreyttan feril og hefur m.a. rekið sitt eigið plötufyrirtæki, unnið sem umboðsmaður Hjaltalín, verið spurningahöfundur og dómari í Gettu betur, rekið vinsælasta bar Reykjavíkur o.fl.

Sem viðburðarhaldari hefur Steinþór gríðarlega mikla reynslu, en hann rekur m.a. Innipúkann í Reykjavík og var stjórnandi Sónar Reykjavík. Hann starfaði einnig sem viðburðarstjóri CCP Games og hélt á þeirra vegum viðburði víða um heim, þ.á.m. í Las Vegas, London, Toronto, Köln, Sydney, Los Angeles, St. Pétursborg og Amsterdam. Þá er ótalið allir þeir fjölmörgu tónleikar sem Steinþór hefur haldið hér heima, bæði í Reykjavík og útum allt land.

Ekki má heldur gleyma hinu viðburðaríka sumri á Vagninum í fyrra, þar sem Steinþór fór fremstur í flokki ásamt samstarfsfélögum sínum.

Sigríður Eyþórsdóttir,
Sassa eins og hún er alltaf kölluð er með BS gráðu í iðjuþjálfun frá Bandaríkjunum og hefur síðustu 25 árin sérhæft sig í ævintýrameðferð og meðferðarvinnu með börnum og unglingum.

Hún starfaði sem iðjuþjálfi í Hagaskóla og starfaði lengi á BUGL og á Reykjalundi. Sassa hefur víðtæka reynslu af kennslu og námskeiðshaldi fyrir börn og fullorðna og bjó í þrjú yndisleg ár í Valencia á Spáni.

Í frítíma sínum elskar Sassa að halda matarboð, syngja í kór og dansa með vinkonum sínum og ferðast eins oft og tækifæri gefst.