Sjálfsefling og sjálfbærni

Markmið námskeiðsins er að nemendur vinni samhliða að því að kortleggja eigin styrkleika og áhugasvið og að skoða hvernig þessir styrkleikir geti gagnast til að bæta samfélagið. Sérstaklega er horft til þeirra áskoranna sem blasa við vegna ósjálfbærra lífshátta og hvernig hægt er að beita skapandi hugsun við að leita lausna.

Dr. Auður H. Ingólfsdóttir
Alþjóðastjórnmálafræðingur og eigandi Transformia
Auður er alþjóðastjórnmálafræðingur og eigandi Transformia, sjálfsefling og samfélagsábyrgð, sem sinnir fræðslu á sviði sjálfbærni og umhverfismála.
Auður er menntuð í Bandaríkjunum, Finnlandi og á Íslandi og hefur kennt við fjölda háskóla síðustu 25 árin. Alþjóðamál, sjálfbærni, náttúruvernd og samfélagslegt réttlæti eru þræðirnir sem tengja saman öll hennar viðfangsefni, hvort sem um er að ræða kennslu, skrif, störf innan stjórnsýslunnar eða ráðgjafastörf. Auður hefur lokið grunnnámi í markþjálfun og trúir því að einn lykillinn að jákvæðum breytingum í samfélaginu felist í því að við leitum sem flest inn á við og finnum kjarnann í okkur sjálfum.