Morgunmatur alla virka daga á meðan skólastarf er í gangi (ekki í haust-, vetrar-, jóla- eða páskafríi).
Hádegismatur alla virka daga á meðan skólastarf er í gangi (ekki í haust-, vetrar-, jóla- eða páskafríi).
Allt efni og afnot af sértækum búnaði sem þarf í námið.
Leiga:
Stúdíóíbúð: 110.000 kr á mánuði.
Einstaklingsherbergi: 70.000 kr á mánuði.
Greiðslufyrirkomulag skólagjalda
Staðfestingargjald: 50.000,- ekki seinna en tveimur vikum eftir staðfestingu á skólavist.*
Skólagjöld eru greidd fyrir hvora önn fyrir sig.**
*Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt.
**Í síðasta lagi 1. september (fyrir haustönn) og 15. desember (fyrir vorönn) til að eiga víst skólapláss. Einnig má semja um greiðsludreifingu fyrir sama tíma.
Styrkmöguleikar
Húsnæðisbætur – Húsnæðisbætur eru greiddar út mánaðarlega og er upphæð háð ýmsum breytum, sjá nánari upplýsingar á hms.is.
Stéttarfélög – Starfsmenntasjóðir stéttarfélaga styrkja að öllu jöfnu meðlimi sína til náms við lýðskóla, að frádregnum gisti- og uppihaldskostnaði. Nánari upplýsingar fást hjá stéttarfélögum.
Sveitarfélög – mörg sveitarfélög bjóða upp á styrki til menntunar. Kannaðu málið hjá þínu sveitarfélagi.
Námsmanna- og ungmennaþjónustur auglýsa árlega eftir umsóknum um námsmannastyrki. Nánari upplýsingar fást hjá viðskiptabanka hvers og eins umsækjanda.