Fjallamennska 1

Lengd námskeiðs

2 vikur

Lengd námskeiðs

2 vikur

Fjallamennska 1

Markmið námskeiðs
Að nemendur dýpki þekkingu sína á ferðamennsku allan ársins hring.
Námskeiðslýsing

Á námskeiðinu fá nemendur dýpri kennslu í öllum grunnatriðum fjallamennsku á Íslandi allan ársins hring. Markmiðið er að gera nemendur hæfari til að stunda fjallamennsku og útivist af öryggi og á eigin vegum. Farið er yfir ferðahegðun, ferða- og útivistarbúnað, mataræði á ferðalögum, veðurfræði, leiðaval og rötun. Áhersla er á örugga ferðamennsku með áherslu á góðan undirbúning. Farið verður yfir helstu hættur og nemendum kennd undirstöðuatriði í lestri á landslagi, sem og umhverfisvitund.

Stór hluti námskeiðsins fer fram utandyra þar sem kennari leiðir nemendur í gegnum æfingar sem miða að ofangreindu markmiði ásamt því sem nemendur fara í lengri og styttri ferðir með kennara og aðstoðarmönnum. Farið verður í nokkrar dagsgönguferðir á stórÖnundarfjarðarsvæðinu auk einnar gönguferðar þar sem gist verður í tjaldi.

Lærdómur/hæfni í lok námskeiðs:
Í lok námskeiðs eiga nemendur hafa öðlast dýpri reynslu af stuttum gönguferðum, geta valið útbúnað og hafa almenna þekkingu á grunnþáttum útivistarlífstíls, allan ársins hring. Geta undirbúið sig og stundað ferðamennsku á eigin vegum. Eftir námskeiðið á nemandinn að geta nýtt sér áttavita og kort við rötun auk þess að vinna með GPS-tæki.

Elísabet Atladóttir

Leiðsögumaður

Elísabet Atladóttir kennir fjallamennsku og útivist í Lýðskólanum á Flateyri, hún elskar fjöllin og náttúruna, stundar skíði, jöklaferðir, klifur, brimbretti og fjallabrölt.