Skapandi hugsun

Lengd námskeiðs

1 vika

Lengd námskeiðs

1 vika

Skapandi hugsun

Markmið námskeiðs
Markmiðið er ekki að verða „góður í leikjum“ heldur að upplifa hvernig leikur getur opnað nýjar leiðir til að hugsa frjótt, vinna með öðrum og þora að stíga út fyrir þægindarammann. Það eina sem þarf er forvitni, smá hugrekki og vilja til að leika sér.
Námskeiðslýsing

Á þessu námskeiði verður hvatt til skapandi hugsunar í gegnum leik, spuna og samvinnu. Farið verður í leiki sem minna á alvörulausa leiki bernskunnar, með því markmiði að hlæja, sleppa tökunum og leyfa sér að gera mistök. Einnig verða leikir brasilíska leikhúslistamannsins Augusto Boal mikið notaðir.

Skoðað verður hvernig leikur getur hjálpað okkur að hugsa út fyrir kassann, vera forvitin, takast á við óvissu og sjá hlutina frá nýjum sjónarhornum. Einnig verður skoðað hvernig við getum notað leik til að tengjast öðrum og efla sköpunarmáttinn.

Alexía Björg Jóhannesdóttir

Leikkona og leiðsögumaður

Alexía  er menntuð leikkona og leiðsögumaður með meistaragráðu í Listum og velferð frá Listaháskólanum. Hún hefur síðustu 20 ár verið sjálfstætt starfandi leikkona, kennt fólki á öllum aldri leiklist og farið með ferðamenn ofan í eldfjallið Þríhnúkagíg. Hún er stofnandi, höfundur og leikkona hópsins Pörupiltar sem sýnt hafa eigin verk í mörg ár.

Upp á síðkastið hefur öll athygli Alexíu farið í leiki og hvaða áhrif leikir hafi á fullorðið fólk enda fjallaði meistararitgerð hennar um áhrif alvörulausra leikja á fullorðið fólk.

Alexía er ættuð úr Selárdal í Arnarfirði.