Lengd námskeiðs
2 vikur
Lengd námskeiðs
2 vikur
Á þessu námskeiði er kennd tækni við að stunda brimbretti. Nemendur fá fræðslu um búnað sem notaður er í sportinu, umhirðu og umgengni. Farið verður í jafnvægisæfingar innandyra, síðan er æft í sundlaug og að lokum farið í raunverulegar aðstæður í sjó. Nemendur læra að lesa í öldurnar og umhverfið með öryggi í fyrirrúmi.
Hér fyrir vestan eru kjöraðstæður fyrir brimbrettaiðkun, þar sem nemandinn er umvafinn fjöllum og krafti náttúrunnar og því frábært tækifæri til að prófa þetta sport.
Lærdómur/hæfni í lok námskeiðs:
Að nemandi kunni grunn í brimbrettaiðkun.
Ingólfur hefur stundað brimbretti við íslenskar og erlendar strendur í yfir 20 ár ásamt þvi að eyða miklum tíma á snjóbretti víðsvegar um heiminn. Hann hefur unnið við leiðsögumennsku á íslandi í yfir 12 ár og byrjaði sinn feril sem leiðsögumaður í straumvatnssiglingum í Hvítá og vann síðan við fjölda mismundandi ferða innan ævintýraleiðsögumennsku á Íslandi eftir að hafa hlotið þjálfun og réttindi í jöklaleiðsögumennsku, straumvatnssiglingum, hellaleiðsögn og fjallaleiðsögn.
Ingó eins og hann er oftast kallaður á og rekur lítið leiðsögufyrirtæki sem sérhæfir sig í ferðum á brimbretti og snjóbretti í bland við almenna ævintýraleiðsögumennsku, íslenska menningu, náttúru, mat og tónlist.