Ferðaskipulag og leiðsögn

Lengd námskeiðs

2 vikur

Lengd námskeiðs

2 vikur

Ferðaskipulag og leiðsögn

Markmið námskeiðs
Markmiðið er að nemendur fái innsýn í hið fjölbreytta starf leiðsögumannsins á Íslandi og læri um þau atriði sem skipta mestu máli við skipulagningu og leiðsögn ferðamanna af ólíkum uppruna.
Námskeiðslýsing

Áhersla verður lögð á færni í mannlegum samskiptum, upplýsingaöflun og leiðaval mismunandi tegunda ferða. Farið verður yfir atriði í ábyrgri ferðaþjónustu, ferðamálafræði og hvað góður undirbúningur skiptir miklu máli fyrir allt ferlið. Farið verður stuttlega yfir markaðssetningu í ferðaþjónustu, ásamt réttindum og skyldum leiðsögumanna.

Nemendur verða mikið í verkefnum utan kennslustofu og fá að spreyta sig í að skipuleggja og leiðsegja styttri og lengri ferðir.

Lærdómur/hæfni í lok námskeiðs:
Nemendur kunni að skipuleggja og leiðsegja styttri og lengri ferðir.