Kajak – hafið og útivist

Lengd námskeiðs

2 vikur

Lengd námskeiðs

2 vikur

Kajak – hafið og útivist

Markmið námskeiðs
Markmið námskeiðsins er að kenna nemendum um mismunandi tegundir kajaka, virkni þeirra og hvernig hægt er ferðast um á þeim.
Námskeiðslýsing

Farið verður yfir ferðaskipulag, áhættur í sjó, sjávarföll og veðurlag ásamt því sem róðrartækni, rötun, björgunaraðferðir og leiðaval verður til umföllunar. Tíminn verður einnig notaður til að fræðast um strandlífríkið; skeljar, þang, fugla og spendýr.

Námskeiðið verður í bland fræðsla, vettvangsferðir, æfingar og sjóferðir. Nemendum stendur einnig til boða að fara í lengri ferð á kajak með kennara og aðstoðarmönnum.

Lærdómur/hæfni í lok námskeiðs:
Að nemandi kunni undirstöðuatriði í kajakróðri, þekki og kunni helstu öryggisatriði tengd íþróttinni.
Að nemandi kynnist möguleikum kajakróðurs sem ferðamáta í lengri og styttri ferðum.

Veiga Grétarsdóttir

Kajakræðari og leiðsögukona

Veiga hefur stundað sjókajak frá árinu 2004 og starfað sem leiðsögukona síðastliðin ár, bæði hér á Ísafirði og Grænlandi ásamt því að kenna hér í Lýðskólanum síðan 2019. Kajak og allt sem honum viðkemur hefur verið hennar helsta ástríða síðastliðin ár.

Árið 2019 fór hún í sína stærstu kajakferð til þessa en þá reri hún rangsælis í kringum Ísland eða á móti straum og varð fyrsta allra til að gera það.

Hún hefur einnig róið um 1/3 af strandlengju Noregs eða um 1000km en þar lagði hún af stað frá landamærum Noregs/Rússlands og ætlaði alla leið til Svíþjóðar en varð að hætta sökum flugnabita en stefnir á klára þessa 2000km sem uppá vantar.

https://www.instagram.com/veigagretarsdottir/

Guðni Páll Viktorsson

Kayak Leiðsögumaður

Guðni er eigandi og leiðsögumaður Sea KayakIceland. Hann hefur starfað fyrir ýmis fyrirtæki við leiðsögn og þjálfun í mörg ár áður en hann ákvað að stofna sitt eigið fyrirtæki, í kjölfar ástríðu sinnar fyrir róðraríþróttinni.
Hann tók sitt fyrsta róðrarstökk árið 2011, 23 ára gamall.
Síðan þá hefur hann róið á Íslandi, í Danmörku, Þýskalandi, Spáni, Wales, Írlandi og í Bretlandseyjum. Ég er löggiltur leiðsögumaður í sjókajak (fjöru) og ISKGA leiðsögumaður og hef þjálfað og aðstoðað á sjókajakráðstefnum í Bretlandi og á Íslandi.
Hann hefur leitt hópa um afskekktasta svæði Íslands, friðlandið Hornstrandir og Jöklafjörðina, síðan 2014.