BLÍÐAN

Sumarhátíð Lýðskólans á Flateyri

TAKK FYRIR OKKUR!

Blíðan er smiðjuhátíð sem haldin var í fyrsta skiptið í júní 2024.

Lýðskólinn á Flateyri stendur fyrir hátíðinni. Hátíðin samanstendur af tvennskonar smiðjum, útivistar- og listasmiðjum og endar á lokahófi þar sem afrakstur smiðjanna er sýndur ásamt tónlist og fleiri skemmtilegheitum.

Sjáumst í Blíðunni 2025!

SMIÐJUHÁTÍÐ LÝÐSKÓLANS Á FLATEYRI

Blíðan er smiðjuhátíð sem haldin er á vegum Lýðskólans á Flateyri og verður haldin í annað sinn 25.-28. júní 2025. Á hátíðinni er boðið upp á fjölbreyttar smiðjur þar sem þátttakendur fá tækifæri til að skapa, læra og njóta samveru í fallegu umhverfi. Smiðjurnar í ár eru vegglist, leiklist og náttúrunytjar.

Lokahóf

Hátíðinni lýkur með lokahófi laugardaginn 28. júní, þegar Blíðan rennur saman við bæjarhátíð Flateyrar. Þar verður afrakstur smiðjanna kynntur með sýningum, tónlist og öðrum viðburðum.

Lokahófið er öllum opið og gjaldfrjálst – við hvetjum öll til að mæta og fagna með okkur!

SMIÐJUR

Þáttakendur þurfa að skrá sig neðst á síðunni – þar er einnig að finna praktísk atriði varðandi hátíðina.

Skráningargjald: 5000 kr

Innifalið í skráningargjaldi er:

  • Smiðjur (búnaður, efni og kennsla)
  • Ein heit máltíð á dag
  • Kaffi og snarl
  • Þáttaka í lokahófi

Athugið að takmarkað pláss er í smiðjum.

VEGGLIST

Leiðbeinandi: Andrea Valgerður Jónsdóttir

Viltu fá tækifæri til þess að setja þitt mark á bæjarmynd Flateyrar?

Vegglistasmiðjan er tilvalin fyrir listamenn á öllum stigum sem vilja leggja sitt af mörkum til bæjarmyndarinnar.

Farið verður yfir grundvallaratriði veggmyndasköpunar, allt frá frumhugmyndum og skissugerð til praktískrar tækni. Allt efni verður á staðnum og mun leiðbeinandi veita aðstoð og ráðgjöf í gegnum alla smiðjuna.

Smiðjunni lýkur svo með sameiginlegu lokahófi þar sem öll eru velkomin að koma og sjá afraksturinn.

NÁTTÚRUNYTJAR

Leiðbeinendur: Ísold Hekla Daníelsdóttir Apeland og Mekkín Guðmundsdóttir

Lærðu að nýta það sem finnst í náttúrunni! Þessi smiðja er fullkomin fyrir alla sem hafa áhuga á sjálfbærni og skapandi notkun náttúrulegra efna.

Í þessari smiðju munu þátttakendur læra hvernig hægt er að nýta náttúruleg efni úr umhverfinu til að búa til fallega og nytsamlega hluti. Við munum safna saman efnum úr náttúrunni og læra mismunandi aðferðir við að vinna með þessi efni.

LEIKLIST

Samstarf við Leikfélag Flateyrar

Langar þig að stíga á svið, prófa þig áfram í leiklist eða einfaldlega taka þátt í skapandi leikferli?

Í leiklistarsmiðjunni fá þátttakendur að kynnast grunnatriðum leiklistar í gegnum leiki, æfingar og samvinnu. Við skoðum hvernig hægt er að byggja upp persónur, túlka texta og vinna saman að sviðssetningu. Smiðjan hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa reynslu – það eina sem þarf er forvitni og vilja til að leika sér.

Smiðjunni lýkur með stuttri sýningu á lokahófi þar sem gestir geta fengið innsýn í vinnuna og þátttakendur (þau sem vilja) fá að njóta sviðsljóssins.

LOKAHÓF

Laugardag 28.júní
15:00-18:00

Smiðjunum lýkur með sameiginlegu lokahófi laugardaginn 28.júní þar sem öll eru velkomin að koma sjá og heyra um afraksturinn. Tónlist og skemmtun!

LOKAHÓF

Laugardag 28.júní
15:00-18:00

Blíðan endar svo á lokahófi sem sameinast bæjarhátíð Flateyrar laugardaginn 28.júní.
þar sem öll eru velkomin að koma sjá og heyra um afraksturinn og skemmta sér með okkur!

Praktík

Hvar og hvenær?

Mæting er í húsnæði Lýðskólans að Hafnarstræti 11 (efri hæð) á Flateyri miðvikudaginn 25.júní kl 13.00.

Fimmtudag og föstudag hefjast smiðjurnar kl 9 og standa til kl 16.

Á laugardegi er sameiginlegur hádegismatur og eftir hádegi er lokahóf.


Hvað er innifalið?

Smiðjurnar (búnaður, efni og kennsla), kaffi og snarl, kvöldmatur á miðvikudegi og hádegismatur á fimmtudegi, föstudegi og laugardegi og þátttaka í lokahófi.


Af hverju?

Smiðjurnar svipa mikið til námskeiða sem kennd eru í Lýðskólanum á Flateyri og leiðbeinendur smiðjana eru allt fólk sem tengist skólanum á einn eða annan hátt, flest eru þau útskrifaðir nemendur sem hafa skarað fram úr í sínu fagi eftir Lýðskólann.


Fyrir hvern?

Hátíðin er opin öllum sem eru 18 ára og eldri. Þau sem eru forvitin og langar til að kynna sér Lýðskólann eru sérstaklega hvött til að skrá sig!

SKRÁNINGARFORM

Smiðjuvikan er einungis fyrir þau sem náð hafa 18 ára aldri eða verða 18 ára á árinu
Ofnæmi, óþol. grænmetisfæði, vegan o.þ.h.
Undirliggjandi sjúkdómar, flogaveiki eða annað sem hafa þarf í huga

STYRKATARAÐILAR

Skipuleggjendur Blíðunnar vilja kom á framfæri þakklæti sínu til þeirra sem styðja við og styrkja hátíðina með einum eða öðrum hætti. Án ykkar væri þetta ekki mögulegt!

TAKK FYRIR:

Ísafjarðarbær

Orkubú Vestfjarða

Málningarbúðin Ísafirði

Húsasmiðjan

Ölgerðin

Arctic Fish

Sjálfboðaliðar og velunnarar