Laugardaginn 11. september 2021 klukkan 14:00 verður skólasetning Lýðskólans á Flateyri haldin í samkomuhúsi Flateyringa.
Dagskrá:
- Tónlistaratriði
- Runólfur Ágústsson stjórnarformaður skólans ávarpar nemendur og gesti
- Skólastjóri setur skólann
- Tónlistaratriði
Að athöfn lokinni verður boðið upp á kaffi og vöfflur í Gunnukaffi.